F R V
- um félagið
- lög og reglugerðir frv
- stjórn, ráð og nefndir
- kjaramál
- umsóknareyðublöð


F R V  F Y R I R T Æ K I
F R V  R Á Ð G J A F A R
F R É T T I R
T E N G L A R
KAUP Á RÁÐGJÖF
- opinberar reglur
- útboðsnefnd frv

L E I T

 

The Icelandic Association of Consulting Engineers

FRV Ráðgjafi skal stuðla ætíð að virðingu, stöðu og góðu orðspori ráðgjafa.

Úr reglugerð um góðar ráðgjafarvenjur


Engjateigi 9
IS-105 Reykjavík
sími: 553 4200
bréfsími: 553 9480
netfang: frv@frv.is

                                                                 



14.01.2010
Nýr viðurkenndur FRV ráðgjafi
Sigurður Gunnarsson Dr.Ing., starfsmaður Almennu verkfræðistofunnar hf. hefur verið viðurkenndur sem FRV-ráðgjafi. Er Sigurður boðinn velkominn í hóp þeirra ráðgjafa er hafa undirgengist sérstaka úttekt og hlotið viðurkenningu Aðildarráðs félagsins á þekkingu og reynslu viðkomandi á sviði verkfræðiráðgjafar.
meira

30.09.2009
Nýtt aðildarfyrirtæki FRV
Verkfræðistofan Ans ráðgjöf ehf. hefur gerst aðili að FRV og um leið hafa verkfræðingarnir Ólafur St. Hauksson og Jón Pálsson, starfsmenn verkfræðistofunnar verið viðurkenndir sem FRV ráðgjafar. Er fyrirtækið og starfsmenn þess boðnir velkomnir í félagið.
meira

29.05.2009
Nýjir viðurkenndir FRV ráðgjafar
Sex ráðgjafar hjá aðildarfyrirtækjum FRV hafa verið samþykktir af aðildarráði og stjórn félagsins sem viðurkenndir FRV-ráðgjafar núna í vor. Um er að ræða eftirtalda einstaklinga; Ársæll Aðalsteinsson, Einar Helgason, Steinar Ingimar Halldórsson, Úlfar Aðalsteinsson og Þórarinn Hjaltason frá Almennu verkfræðistofunni hf.
meira

11.04.2008
Sameining verkfræðistofa
Verkfræðistofurnar VGK-Hönnun hf. og Rafhönnun hf. hafa sameinast undir merkjum Mannvits. Forstjóri Mannvits hf. verður Eyjólfur Árni Rafnsson en aðstoðarforstjórar þeir Runólfur Maack sem mun hafa umsjón með erlendri starfsemi og Skapti Valsson sem verður með umsjón með innlendri starfsemi.
meira

22.02.2008
VST og Rafteikning sameinast
Ákveðið hefur verið að sameina VST, Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. og Rafteikningu hf. Gert er ráð fyrir að nýju verkfræðistofunni verði formlega hleypt af stokkunum um miðbik ársins, en hún verður með þeim stærstu hér á landi með um 240 starfsmenn.
meira

07.02.2008
Viðurkenndir FRV-ráðgjafar
Þrír nýjir FRV-ráðgjafar hafa verið viðurkenndir af Aðildarráði félagsins. Það eru þeir Eggert Vilberg Valmundsson hjá VST hf., Óskar Örn Jónsson hjá VSB verkfræðistofu ehf. og Egill Viðarsson hjá Almennu verkfræðistofunni hf.
meira

03.01.2007
Sameining verkfræðistofa
Nú um áramótin sameinuðust verkfræðistofurnar Hönnun hf. og Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns hf. Úr verður stærsta verkfræðistofa landsins með um 240 starfsmenn. Aðalskrifstofa VGK-Hönnunar hf. er að Grensásvegi 1 í Reykjavík.
meira

21.09.2006
Nýir viðurkenndir FRV-ráðgjafar
Á síðasta fundi stjórnar FRV hlutu þeir Örn Guðmundsson verkfræðingur hjá VSB verkfræðistofu ehf. og Hjörtur Hansson verkfræðingur hjá VST hf. viðurkenningu sem FRV-ráðgjafar. Stjórn félagsins bíður þá velkomna í hóp annarra viðurkenndra FRV-ráðgjafa sem hafa staðfestingu Aðildarráðs félagsins á reynslu og þekkingu á sviði verkfræðiráðgjafar.
meira

13.12.2005
Nýtt aðildarfyrirtæki
Fyrirtækið Rainrace ehf. gerðist aðili að FRV fyrir skemmstu og var Sólveig Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækisins um leið viðurkennd sem FRV-ráðgjafi. Rainrace ehf. veitir ráðgjöf á sviði almannavarna-og einkavarnamála hér á landi og erlendis.
meira