F R V
- um félagið
- lög og reglugerðir frv
- stjórn, ráð og nefndir
- kjaramál
- umsóknareyðublöð


F R V  F Y R I R T Æ K I
F R V  R Á Ð G J A F A R
F R É T T I R
T E N G L A R
KAUP Á RÁÐGJÖF
- opinberar reglur
- útboðsnefnd frv

L E I T

 

OPINBERAR REGLUR

Lög og reglur er varða kaup á ráðgjöf:

Lög nr. 65/1993
um framkvæmd útboða
 
Lög þessi gilda þegar útboði er beitt til þess að koma á viðskiptum milli tveggja eða fleiri aðila um verk, vöru eða þjónustu. Lög þessi gilda þó ekki fyrir útboð á fjármagns- og verðbréfamarkaði.
   
Lög nr. 42/2000
um þjónustukaup
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
  
Lög þessi taka til hvers kyns samninga um kaup á þjónustu sem veitt er neytendum í atvinnuskyni gegn endurgjaldi og þegar veitt þjónusta felur í sér:
1. vinnu við lausafjármuni,
2. vinnu við fasteignir, vinnu vegna byggingarframkvæmda eða aðrar framkvæmdir á landi,
3. geymslu á lausafjármunum,
4. ráðgjafarþjónustu sem veitt er í tengslum við 2. tölul.
Með þjónustu er átt við heildarframlag seljanda sem honum ber greiðsla fyrir.
Með neytanda er átt við einstakling sem er kaupandi þjónustu og kaupin eru ekki í atvinnuskyni eða í tengslum við starf hans.
   
Lög nr. 84/2001
um skipan opinberra framkvæmda
 
 
 

  
Opinber framkvæmd merkir í lögum þessum gerð, viðhald eða breytingu mannvirkis sem kostuð er af ríkissjóði að nokkru eða öllu leyti, enda nemi áætlaður kostnaður ríkissjóðs a.m.k. 5 millj. kr. Heimilt er fjármálaráðuneytinu að breyta áðurnefndri fjárhæð til samræmis við verðbreytingar. Ákvæði laganna taka einnig til kaupa og leigu á eignum, eftir því sem við getur átt.

   
Reglugerð nr. 715/2001
um skipan opinberra framkvæmda
 
 
 
  
Markmið reglugerðar þessarar er að skýra hlutverk og ábyrgð þeirra aðila sem vinna að opinberum framkvæmdum, skýra áfangaskiptingu opinberra framkvæmda og ákvarðanatöku í tengslum við þær og treysta þannig faglega málsmeðferð, samræmd vinnubrögð og hagkvæmni í samræmi við lög nr. 84/2001 um skipan opinberra framkvæmda.
   
Lög nr. 94/2001
um opinber innkaup
   

Tilgangur laga þessara er að tryggja jafnræði bjóðenda við opinber innkaup og stuðla að virkri samkeppni og hagkvæmni í opinberum rekstri.

 

Til baka