|
Val á ráðgjafa
Val á ráðgjafa er ein þýðingarmesta ákvörðun sem
verkkaupar þurfa að taka. Að njóta ráðgjafar færustu og
reyndustu sérfræðinga sem völ er á hverju sinni er oftast
forsenda þess að vel takist til með tiltekið verk.
Þegar meta á hæfni verkfræðiráðgjafa til að vinna
tiltekið verk er mikilvægast að huga að eftirfarandi:
-tæknigetu
-stjórnunarhæfni
-aðföngum
-faglegu sjálfstæði
-sanngjörn þóknun
-áreiðanleiki
-gæðaeftirliti.
Verkkaupi ætti að afla sér upplýsinga um allt þetta
með því að:
- fá skriflegt þjónustuumboð
frá ráðgjafanum með ítarlegum upplýsingum
- ræða við lykilmenn ráðgjafans
- ráðfæra sig við aðra viðskiptavini
ráðgjafans
- kynna sér þau verkefni sem
ráðgjafi hefur unnið og ræða við notendur
- heimsækja ráðgjafa og skoða
þau kerfi og þær aðferðir, sem verkfræðingarnir vinna
eftir,
svo og vélbúnað og tölvuforrit
sem þeir hafa yfir að ráða.
Ofanritað er byggt á heftinu; Hæfnisval -leiðbeiningar um
val ráðgjafarverkfræðinga (Selection by ability -FIDIC
guidelines on quality based selection of consulting engineers) útgefið
í Reykjavík, október 1992. Heftið fæst á skrifstofu FRV þar
sem einnig fást upplýsingar um önnur rit og bækur sem fjalla
um kaup á ráðgjöf, samningagerð milli verkkaupa
og ráðgjafa o.s.fr.
Árið 1992 kom út staðallinn ÍST 35, Samningsskilmálar
um hönnun og ráðgjöf. Að gerð staðalsins vann nefnd á
vegum Byggingastaðlaráðs. Í nefndinni voru fulltrúar frá Félagi
ráðgjafarverkfræðinga, Arkitektafélagi Íslands, Sambandi íslenskra
sveitarfélaga og Fjárlaga- og hagsýslustofnun.
ÍST
35 er í dag algengasta formið sem ákvarðar réttarsambandið
milli verkkaupa og ráðgjafa við hönnun og tækniráðgjöf á
Íslandi. Í staðlinum eru t.a.m. ákvæði um tilhögun ráðgjafar,
skyldur verkkaupa og ráðgjafa, skilafrest, höfunda- og eignarétt,
tilhögun þóknunar, ábyrgð og úrlausn ágreiningsefna.
Samkvæmt íslenskum lögum er skylt að
bjóða út opinberar framkvæmdir þar sem kostnaður við þær
fara yfir ákveðið lágmark. Á grundvelli EES samningsins ber
síðan að bjóða út á Evrópska efnahagssvæðinu opinberar
framkvæmdir sem eru fyrir ofan viðmiðunarmörk samkvæmt þeim
samningi. Sjá nánar lög og reglur er gilda um opinber innkaup undir
Opinberar reglur hér á heimasíðunni.
|