| 13.12.2005 |
|
Fyrirtækið Rainrace ehf. gerðist aðili að FRV fyrir skemmstu og var Sólveig Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækisins um leið viðurkennd sem FRV-ráðgjafi. Rainrace ehf. veitir ráðgjöf á sviði almannavarna-og einkavarnamála hér á landi og erlendis. Verkefni eru ráðgjöf, rannsóknir og kennsla varðandi hvers konar neyðar- og björgunarmál. Markhópur fyrirtækisins eru fyrirtæki og heimili, almannavarnir, stjórnvöld, ríkisstofnanir, alþjóðastofnanir og björgunaraðilar; í raun allir sem þurfa að undirbúa sig að bregðast við neyðarástandi. Á enskri tungu er starfsemi sem þessi jafnan kölluð Disaster and Crisis Management.
|